Fréttir

BRETT TURCOTTE - 2013 MTB SEASON

Brett Turcotte sem við þekkjum best úr snjósleðaheiminum sem hrikalegann snocross og nú freeride ökumann getur heldur betur tekið á því á fleiri leiktækjum en í sumar tók hann vel á því á bakvið stýrið á fjallahjóli og í myndbandinu má sjá brot af því besta frá kappanum ! Djöfull þarf maður að komast í svona brautir með hjólið !Brett Turcotte - 2013 MTB Season

FINNI + MÓTORHJÓL + FALLHLÍF = VITLEYSA

Þetta video er bara aðeins of mikil snilld, þarna er mættur einhver snillingur frá Finnlandi sem sýnir okkur hvernig hann fær hjartað til að pumpa á venjulegum sunnudegi í skóginum hjá sér...Crazy Finnish Guy Jump

BURTON - WOMEN [SNOWBOARDING]

Burton var að senda frá sér þriðju snjóbretta stuttmyndina í fjögurra þátta seríu sem er búin að koma út á tveggja vikna fresti núna síðustu vikur. Þessi þriðja mynd fjallar um Burton stelpurnar en þarna koma fram Kimmy Fasani, Kelly Clark, Hannah Teter, Arielle Gold, Enni Rukajärvi, og Cilka Sadar. Við fáum að sjá þær í allskyns aðstæðum frá fjöllum yfir í brettagarða og sjáum hvað þessar stelpur eru grjótharðar ! Þá er bara að ýta á "play" og njóta næsta korters í boði Burton !Burton - Women [Snowboarding]

Burton Presents Snowboarding - Backcountry Burton Presents Snowboarding - Backcountry Burton Presents Snowboarding - Backcountry Burton Presents Snowboarding - Backcountry
13.09.13                              27.09.13                             11.10.13                             25.10.13

RED BULL RAMPAGE 2013 - LIVE

Það er komið að því, úrslitin í Red Bull Rampage 2013 ! Þetta er náttúrulega ein flottasta fjallahjólakeppni í heimi í alveg hreint ótrúlegu landslagi og allar helstu fjallahjólahetjur heims samankomnar til að sýna sig og sanna ! Red Bull býður uppá beina útsendingu af öllu fjörinu svo það er klárt hvað þetta sunnudagskvöld fer í, svo komdu þér vel fyrir, smelltu á play og njóttu...

MOTO 5 THE MOVIE - TRAILER

Stundin sem allir hafa beðið eftir ! Trailer-inn fyrir Moto 5 The Movie var að detta á netið og það er eins og við öll vissum, hún virðist ekki ætla að gefa fyrri myndunum neitt eftir ! Þarna fáum við að sjá þá Ryan Villopoto, Adam Cianciarulo, Josh Cachia, Ronnie Renner, Cooper Webb, Justin Hill, Zach Osborne, Russell Bobbitt, Taylor Robert, Tyler Bereman, Kailub Russell, Jimmy Decotis, Tom Parsons, Kyle Redmond, Cody Webb og marga fleiri ! Myndin verður gefin út þann 19. nóvember en þangað til þá getið þið horft á sýnishorn af veislunni hér...Moto 5 The Movie