Skíði

MARMOT RIDES ICELAND 2013

Marmot var að senda frá sér flott myndband frá ferð þeirra til Íslands síðasta vor en þar var flakkað um með teymið sem skíðaði á nokkrum vel völdum stöðum og líka smá ísklifur með því ! Enn eitt myndbandið sem minnir okkur á hvurslags vetrarparadís við búum í og að við þurfum ekki endilega að leyta langt til að finna heimsklassa aðstæður !Marmot Rides Iceland 2013

A SKIER'S SEARCH FOR MEANING

Alveg sjúklega töff video sem allavega ég fékk bara fiðring við að horfa á, hittir svo beint í mark að lýsa ánægju tilfinningunni sem fylgir því að renna sér og hvað við fáum útúr því ! Mæli með að þið smellið á þetta og athugið hvort þið fáið líka fiðringinn !A Skier's Search of Meaning

ICELAND | A SKIER'S JOURNEY

"A Skier's Journey" er sería af netþáttum þar sem ferðast er um heiminn og skíðamenningin skoðuð á ólíkum stöðum. Núna í vikunni kom út nýjasti þátturinn frá þeim og þar var ferðast til Íslands og Vestfirðir skoðaðir með allri sinni náttúru og sögu. Virkilega flottur þáttur sem enginn ætti að láta framhjá sér fara. Ef þið hafið áhuga þá setti ég tengla á fyrri þætti í þessari seríu en þar er farið til Japan og Dubai.Iceland | A Skier's Journey

Dubai | A Skier's Journey

Japan | A Skier's Journey

SALOMON FREESKI TV - SEASON 5 - EPISODE 14

Fjórtándi þátturinn af Salomon Freeski TV er kominn á netið ! Í þessum þætti er farið í ferðalag á frekar framandi skíðasvæði í Kashmir á Indlandi. Þar er gríðarleg uppbygging og er þeir meira að segja komnir með "Heli Skiing" ! Gríðarlega flottur þáttur !

Salomon Freeski TV

SALOMON FREESKI TV - SEASON 5 - EPISODE 13

Þrettándi þátturinn af Salomon Freeski TV er kominn á netið ! Í þessum þætti er fylgst með Josh Dueck sem er einn allra fremsti Mono skíðarinn í heiminum, Josh var meðal bestu free-skíðara í heimi áður en hann lenti í vondu krassi í stökki og lamaðist. Josh hefur lengi dreymt um að geta gert "backflip" aftur og í þessu þætti fáum við að fylgjast með honum...

Salomon Freeski TV