• BLOGGIÐ
  • JONNI
    • MYNDIR
    • MYNDBÖND
  • JONNI PRODUCTIONS
    • GRAFÍK
    • AUGLÝSINGAR
    • VEFSÍÐUR
    • LJÓSMYNDUN
    • KVIKMYNDUN
  • ENGLISH

RUFFRIDERS 9 - TRAILER

Miðvikudagur 18 September 2013 23:52 | Prenta | Tölvupóstur | Flettingar: 2322

Svíarnir í Ruffriders eru að mæta helillir aftur með sína 9. mynd og ef marka má "trailer-inn" þá er sko ekkert gefið eftir og þetta verður klárlega mynd sem enginn sleðamaður ætti að láta framhjá sér fara ! Myndin á að koma út í haust, hef ekki fundið ákveðna dagsetningu en mun uppfæra þetta um leið og ég sé það !Ruffriders 9 Trailer


Tweet Comments
Flokkur: Snjósleðar / Freeride

CHRIS AKRIGG - TRIAL TRAILS

Mánudagur 16 September 2013 13:49 | Prenta | Tölvupóstur | Flettingar: 2175

Hrikalega töff video sem hjólamaðurinn Chris Akrigg var að senda frá sér þar sem hann sýnir ótrúlegar listir á "All Mountain" fjallahjóli og hoppar og hendir því til eins og ekkert sé... Hann segir sjálfur í lýsingu við myndbandið að hugmyndin hafi verið að fara út að hjóla án þess að láta nein hlið, girðingar eða annað hægja á sér og ég held bara að honum hafi tekist það þokkalega vel ! Sjón er sögu ríkari !Chris Akrigg - Trial Trails

Tweet Comments
Flokkur: Fréttir / Hjól

BURTON - BACKCOUNTRY [SNOWBOARDING]

Mánudagur 16 September 2013 13:28 | Prenta | Tölvupóstur | Flettingar: 2519

Burton var að senda frá sér fyrstu snjóbretta stuttmyndina í fjögurra þátta seríu sem kemur út hver á eftir annari á næstu vikum. Fyrsta myndin fjallar um brettamennsku í fjöllunum eða "Backcountry" eins og þeir kalla þetta í ameríkuhreppi. Þarna koma fyrir þeir Jussi Oksanen, Terje Haakonsen, Jeremy Jones, Nicolas Müller, Mikey Rencz og Mark Sollors, semsagt alger veisla ! Mæli með að þið komið ykkur vel fyrir og smellið á "play" og njótið næstu 20 mínútna !Burton - Backcountry Snowboarding

Burton Presents Snowboarding - Backcountry Burton Presents Snowboarding - Backcountry Burton Presents Snowboarding - Backcountry Burton Presents Snowboarding - Backcountry
13.09.13                             27.09.13                             11.10.13                             25.10.13

Tweet Comments
Flokkur: Fréttir / Snjóbretti

RJ ANDERSON XP1K VIDEO

Laugardagur 17 Ágúst 2013 18:03 | Prenta | Tölvupóstur | Flettingar: 2847

Í tilefni nýja Polaris RZR XP1000 bílsins ákváðu UTV Underground og Mad Media að slá saman og búa til það allra flottasta UTV video sem hefur sést hingað til ! Við gerð myndbandsins voru notaðir tveir sérsmíðaðir RZR bílar og ökumaðurinn RJ Anderson fenginn til að keyra kvikindin !

RJ Anderson XP1K VideoRJ Anderson XP1K VideoRJ Anderson XP1K Video

Þetta jaðrar við að vera eins og Gymkhana myndband frá Ken Block nema bara á RZR ! Sjón er sögu ríkari svo smellið á "play" og njótið...!

Tweet Comments
Flokkur: Fréttir / Bílar

509 FILMS VOLUME 8 TEASER

Þriðjudagur 13 Ágúst 2013 17:45 | Prenta | Tölvupóstur | Flettingar: 2447

Þeir hjá 509 ætla greinilega að halda sínu striki áfram en þeir hafa verið að færa sig virkilega uppá skaftið í snjósleða myndböndum sínum bæði hvað varðar myndatöku og svo líka bara aksjónið sjálft ! Nýja myndin þeirra er sú áttunda sem þeir gefa út og þeir eru komnir með svakalega flotta ökumenn í listann og ef marka má þennan "teaser" hér fyrir neðan verður þetta hörð samkeppni við nýju Slednecks myndina ! Myndin kemur út þann 26. ágúst og hægt að kaupa hana á www.ride509.com !509 Films Volume 8

Tweet Comments
Flokkur: Fréttir / Snjósleðar

Fleiri greinar...

  1. SLEDNECKS 16 TRAILER
  2. WITHDRAWALS - A SNOWMOBILERS STRUGGLE WITH SUMMER
  3. HLÍÐARFJALL DROP 15.06.13
  4. JOHN JOHN FLORENCE - PERFECT 10
  5. DANNY MACASKILL - IMAGINATE
  6. SLEÐASTÖKK Í HLÍÐARFJALLI 20.04.13
  7. SNJÓFLÓÐ 101
  8. AK PARK 25.03.13.
  9. HLÍÐARFJALL 24.03.13
  10. UPPLÝSINGAR FYRIR ÍSCROSS Á MÝVATNI

Síða 9 af 78

  • Byrjun
  • Fyrri
  • 4
  • 5
  • 6
  • 7
  • 8
  • 9
  • 10
  • 11
  • 12
  • 13
  • Næsta
  • Endir

Jónas Stefánsson | info@jonni.is | © Allt efni nema annað sé tekið fram

 

Facebook      Twitter      Instagram      Vimeo