Snjósleðar
LYNX RAVE RS 600 2014
Fyrr í haust fjallaði ég um snocross sleðana fyrir komandi keppnistímabil frá Polaris, Ski-Doo og Arctic Cat en þá var ekki búið að gefa út neinar upplýsingar og ófétið frá Finnlandi eða Lynx-inn ! Nú fyrir stuttu var kvikindið svo frumsýnt og það er alveg óhætt að segja að þetta sé helvíti eiguleg græja ! Búið er að uppfæra boddý-ið og kallast það REX2, framfjöðrunin er eins og í frændanum Ski-Doo en Lynxinn er áfram með KYB demparana, eins og allir hinir framleiðendurnir er Lynx-inn kominn með 128" belti en Lynx keppnissleðinn var með 130" belti 2012 og 2013, PPS búkkinn er ennþá á sínum stað enda ljósárum á undan öðrum búkkum í virkni, sleðinn kemur með svokölluðu "svía-moddi" en það eru einskonar krækjur eða stopparar fremst í stigbrettunum til að færa akstursstöðu ökumannsins aftar og þetta getur hjálpað til við höndlun í beygjum, svo eru auðvitað þessar standard uppfærslur á vél, kúplingum o.fl.
Lynx Rave RS 600 2014
Hér má nálgast nánari upplýsingar um sleðann - Lynx Rave RS 600 2014 Specsheet
Hvað finnst ykkur ?
ISOC SNOX 13/14 - ROUND 1/2 - DULUTH
Um helgina fór fram fyrsta keppnishelgin í ISOC Snocrossinu á tímabilinu 2013/2014 og eins og venjulega byrjaði ballið í Duluth, Minnesota. Á föstudeginum fór fram í þriðja sinn Amsoil Dominator en það er æsispennandi útsláttarkeppni þar sem einn sigurvegari stendur eftir, það var Tim Tremblay á Ski Doo sem sigraði þessa keppni í ár eftir gríðarlega spennandi baráttu í undanrásunum. Á laugardeginum var svo komið að fyrstu umferð í ISOC Snocrossinu og á sunnudeginum fór fram önnur umferð. Brautin í Duluth að þessu sinni var sú lengsta sem hefur verið þar og bauð uppá mjög spennandi keppni með miklum tilþrifum !
Myndir frá ISOC
Pro Open - Round 1 - Final: Eftir mjög spennandi undanrásir á laugardeginum voru menn slegnir með rothöggi í úrslitahítinu þegar Tucker Hibbert á Arctic Cat tók holuskotið og gerði lítið úr hinum þar sem að á síðasta hring náði hann að hringa alla keppinauta sína ! Tim Tremblay á Ski Doo og Ross Martin á Polaris sem menn höfðu talið líklegasta til að standa í Tucker lentu báðir í veseni, Tim með bilaðann sleða og Ross í krassi. Á eftir Tucker voru það hinsvegar Cody Thomsen í öðru og Kyla Pallin í þriðja.
Pro Open - Round 2 - Final: Á sunnudeginum þegar kom að úrslitahítinu voru það liðsfélagarnir Levi LaVallee og Kyle Pallin á Polaris sem tóku holuskotið en fast á hæla þeirra var Tucker Hibbert sem gerði sér lítið fyrir og tók framúr Levi á fyrsta hring, í lok annars hrings klemmdi hann svo Kyle Pallin af eftir endastökkspallinn og þaðan var það greið leið til sigurs fyrir T-lestina. Hann hringaði ekki alla að þessu sinni en var samt með um 20 sekúndna forskot á næsta mann í braut sem var að meðaltali um 28 sekúndur. Kyle Pallin hélt sínu striki og endaði annar en á eftir honum var það Ross Martin sem náði að bæta aðeins upp fyrir klúður laugardagsins og endaði þriðji.
Hrikalega spennandi byrjun á ISOC Snocrossinu 2012/2013, næsta keppni fer svo fram strax um næstu helgi í Blackjack, Michigan þann 6-7. desember !
Smellið á "Lesa meira..." til að sjá heildarúrslitin frá Duluth og stigastöðuna
ISOC SNOX 13/14 - ROUND 1/2 - DULUTH - LIVE
Um helgina fer fram fyrsta keppnishelgin í ISOC Snocross seríunni 2013/2014 og eins og alltaf fer keppnin fram í Duluth, Minnesota. Þessa helgina verður keppt föstudag, laugardag og sunnudag. Á föstudeginum fer fram svokallað Amsoil Dominatior sem er æsispennandi útsláttarkeppni og hefur farið fram síðustu ár. Á laugardeginum er svo 1. umferð tímabilsin og 2. umferðin á sunnudeginum. Öll þessi veisla verður í beinni útsendingu á netinu svo ekki missa af brjálaðri Snocross spennu í beinni !
ISOC Snocross 13/14 - Round 1/2 - Duluth - Dagskrá (íslenskur tími):
Föstudagur:
20:40 - Amsoil Dominatior - Seeding
21:50 - Amsoil Dominatior - Seeding
23:20 - Amsoil Dominatior - Round 1
01:00 - Amsoil Dominatior - Round 2
01:00 - Amsoil Dominatior - Semi-Final
01:00 - Amsoil Dominatior - Final
Laugardagur:
21:20 - Pro Lite #1 - Round 1
23:20 - Pro Open - Round 1
23:40 - Pro Lite #1 - Round 2
00:45 - Pro Open - Round 2
01:05 - Pro Lite #1 - LCQ
01:35 - Pro Open - LCQ
01:50 - Pro Lite #1 - Final
02:10 - Pro Open - Final
Sunnudagur:
16:30 - Pro Lite #2 - Round 1
18:20 - Pro Open - Round 1
18:40 - Pro Lite #2 - Round 2
19:25 - Pro Open - Round 2
19:45 - Pro Lite #2 - LCQ
20:15 - Pro Open - LCQ
20:30 - Pro Lite #2 - Final
20:50 - Pro Open - Final
Heildardagskrá má finna á síðu ISOC hér !
SLDNX - BLAST FROM THE PAST - JAY QUINLAN
Slednecks voru að senda frá sér annan "Blast from the Past" netþátt þar sem við fáum að rifja upp kaflann hans Jay Quinlan úr Slednecks 5, en þessi maður var og er náttúrulega alger goðsögn í sleðaheiminum fyrir svo ótal margt ! Hér fáum við að njóta þess að sjá hann á Polaris Pro-X kvikindinu að refsa honum hrikalega í sjúkum stökkum og drop-um !
SLEDNECKS - BLAST FROM THE PAST
Þetta er náttúrulega alger snilld, en Slednecks gengið var að byrja með skemmtilegan netþátt þar sem þeir rifja upp atriði úr sögu myndanna og nýjasta brotið sem þeir smelltu á netið er alveg frá byrjuninni, úr myndinni sem startaði öllu dæminu, Slednecks 1 ! Þarna eru það klárir frumkvöðlar Todd Swim og Zeph Bryant sem taka á því í Crested Butte í USA á tryllitækjum sinnar tíðar ! Passar vel að kynda svona upp í manni þar sem hvítagullinu kyngir niður þessa stundina hér fyrir norðan !
Fleiri greinar...
- 2014 SNOCROSS SLEÐARNIR
- RUFFRIDERS 9 - TRAILER
- 509 FILMS VOLUME 8 TEASER
- SLEDNECKS 16 TRAILER
- WITHDRAWALS - A SNOWMOBILERS STRUGGLE WITH SUMMER
- 208 PRODUCTIONS - MATT ENTZ TEASER
- ÉLJAGANGS SNJÓSLEÐASPYRNAN 2013
- SLEÐAKYNNING ELLINGSEN Á AK UM HELGINA
- ISOC SNOX 2013 - ROUND 5/6 - CANTERBURY - LIVE
- ISOC SNOX 2013 - ROUND 3/4 - BLACKJACK