• BLOGGIÐ
  • JONNI
    • MYNDIR
    • MYNDBÖND
  • JONNI PRODUCTIONS
    • GRAFÍK
    • AUGLÝSINGAR
    • VEFSÍÐUR
    • LJÓSMYNDUN
    • KVIKMYNDUN
  • ENGLISH

ECC ÍSLAND 2011 - 5 & 6 UMFERÐ

Þriðjudagur 06 September 2011 13:57 | Prenta | Tölvupóstur | Flettingar: 4146

Á laugardaginn fóru fram tvær síðustu umferðir sumarsins í Enduro Cross Country 2011. Keppt var á skíðasvæðinu í Tindastóli við Sauðárkrók og brautin sem boðið var uppá var alveg frábær. Hún var að miklu leyti svipuð og þegar keppt var síðast á þessu svæði 2008 en þó með nokkrum breytingum. Það var frekar kalt í veðri og af og til læddist þykk þoka yfir svæðið en allt slapp til !

Myndir frá Halldóri Björnsyni

Í B-flokknum var Guðbjartur #12 í sérflokki eins og áður í sumar og sigraði örugglega, annar varð Ármann Örn #162 og í þriðja endaði Elmar Már Einarsson #309. Í B - 40+ flokki var það Sigurður Hjartar Magnússon #707 sem sigraði daginn, annar varð Ágúst H Björnsson #68 og í þriðja endaði Magnús Guðbjartur Helgason #45 en hann lenti í bilun í fyrri umferðinni. Í B - 85cc flokki voru aðeins tveir keppendur og Einar Sig # 671 sigraði örugglega og Viggó Smári Péturs #20 í öðru. Í B - Kvenna urðu mikil afföll af keppendum en það var Signý systir #34 sem sigraði daginn, á eftir henni í öðru var Guðfinna Gróa Péturs #20 og í þriðja endaði Guðný Hansen #936 í sinni fyrstu keppni. Í A - ECC-1 var það svo Kári Jóns #46 sem kom sá og sigraði eins og venjan hefur verið í sumar, í öðru sæti var Gulli #757 og Daði #298 náði þriðja sæti þrátt fyrir að hafa keyrt með tvö brotin rifbein frá fyrsta hring eftir stóra byltu. Í A - ECC-2 var það Eyþór Reynis #11 sem sigraði örugglega, ég endaði svo í öðru sæti og Þorri Jóns #291 endaði í þriðja. Í A - Tvímenning voru það Gunni Sölva og Atli Már #4T sem sigruðu.

Mér gekk bara þokkalega í þessari keppni, fyrri umferðin var reyndar hræðileg þar sem ég hafði gleymt að stilla framdemparann eftir upptekt og var með Rebound-ið í botni sem var ekki að skila mikilli fjöðrun, en í seinni umferðinni gekk mér mun betur og þar sem Bjarki Sig #670 hætti eftir fyrri umferðina náði ég að stökkva aðeins upp í Íslandsmótinu og endaði annar í ECC-2 ! Þvílíkt enduro sumar en stefnan er bara tekin hærra á næsta ári ;) !

Topp 3 úrslit úr öllum flokkum:

A - ECC-1
1. Kári Jónsson #46
2. Gunnlaugur Rafn Björnsson #757
3. Daði Erlingsson #298
Íslandsmeistari - Kári Jónsson #46

A - ECC-2
1. Eyþór Reynisson #11
2. Jónas Stefánsson #24
3. Þorri Jónsson #291
Íslandsmeistari - Eyþór Reynisson #11

A - Tvímenningur
1. Gunnar Sölvason & Atli Már Guðnason #4T
2. Brynjar Kristjánsson & Árni Stefánsson #11T
3. Guðmundur H Hannesson & Arnór Ísak Guðmundsson #14T
Íslandsmeistari - Gunnar Sölvason & Atli Már Guðnason #4T

B
1. Guðbjartur Magnússon #12
2. Ármann Örn Sigursteinsson #162
3. Elmar Már Einarsson #309
Íslandsmeistari - Guðbjartur Magnússon #12

B - 40+
1. Sigurður Hjartar Magnússon #707
2. Ágúst H Björnsson #68
3. Magnús Guðbjartur Helgason #45
Íslandsmeistari - Magnús Guðbjartur Helgason #45

B - 85cc
1. Einar Sigurðsson #671
2. Viggó Smári Pétursson #20
Íslandsmeistari - Einar Sigurðsson #671

B - Kvenna
1. Signý Stefánsdóttir #34
2. Guðfinna Gróa Pétursdóttir #25
3. Guðný Hansen #936
Íslandsmeistari - Signý Stefánsdóttir #34

Heildarúrslitin má sjá á vef MSÍ - www.msisport.is

Tweet Comments
Flokkur: Mótorhjól / Enduro

THE MOTO SHOW - EPISODE 4

Mánudagur 05 September 2011 00:43 | Prenta | Tölvupóstur | Flettingar: 4960

Fjórði þátturinn mættur og í þessum mæta ekki menn af verri endanum, Justin Soule, Ronnie Renner og Josh Grant. Snilldar þættir sem verða alltaf betri og betri !

Tweet Comments
Flokkur: Fréttir / Mótorhjól

BRETTA OG SKÍÐA TRAILER TRYLLINGUR

Miðvikudagur 31 Ágúst 2011 10:04 | Prenta | Tölvupóstur | Flettingar: 9689

Haustið er að mæta og þá er góssentíð fyrir snjóbretta- og skíðafólk því þá flæða nýjar myndir úr smiðjum meistaranna. Það er ekkert frábrugðið í ár og það eru klárlega góð kvöld framundan í glápi á þessar ræmur. Hér fyrir neðan er ég búinn að safna saman flottustu "trailer-unum" að mínu mati bæði í brettamyndum og skíða ! Svo er bara að bíða...

BRETTI:

Brain Farm: "The Art of Flight"

Standard Films: "TB20"

Videograss: "Retrospect"

Burton Snowboards: "Standing Sideways"

 

SKÍÐI:

Level 1 Productions: "After Dark"

Matchstick Productions: "Attack of La Niña"

Poor Boyz Productions: "The Grand Bizarre"

Teton Gravity Research: "One For The Road"

Tweet Comments
Flokkur: Fréttir / Annað

SLEDNECKS 14 - TORRENT

Þriðjudagur 30 Ágúst 2011 00:44 | Prenta | Tölvupóstur | Flettingar: 5215

Ég veit að svona myndir á að kaupa, en því miður er það ekki í boði á okkar Íslandi á þessu herrans ári 2011... Svo við verðum bara að vera pínu þjófar og nýta okkur veraldarvefinn ! Og vááá hvað þetta er geðveik ræma, alveg miklu betri en síðustu myndir að mínu mati og fullt af nýjum nöfnum ! Algert "must" fyrir alla áhugamenn að bæta þessari í safnið !

Slednecks 14 Torrent:

http://thepiratebay.org/torrent/6638749/

Tweet Comments
Flokkur: Snjósleðar / Freeride

THE MOTO SHOW - EPISODE 3

Sunnudagur 28 Ágúst 2011 12:43 | Prenta | Tölvupóstur | Flettingar: 5141

Þriðji þáttur The Moto Show er kominn á netið og ekki eru gestirnir af verri endanum í þetta skiptið, Jeremy McGrath, Chad Reed, David Bailey og Bob Hannah so einhverjir séu nefndir. Auk þess er farið yfir allt sem gerðist í sportinu síðustu vikuna. Ekki missa af þessum !

Nánar / Tjá skoðun

Tweet Comments
Flokkur: Fréttir / Mótorhjól

Fleiri greinar...

  1. NÝJA SÍÐAN KOMIN Í LOFTIÐ !!!
  2. ENDURO Á SKAGAFIRÐI 2011
  3. INDUSTRIAL REVOLUTIONS
  4. KEN BLOCK'S GYMKHANA 4
  5. THE MOTO SHOW - EPISODE 2
  6. THE MOTO SHOW - EPISODE 1
  7. LÍTIL VIRKNI Á SÍÐUNNI
  8. KLAUSTUR VERÐUR 12. JÚNÍ !
  9. MX ÆFING SAUÐÁRKRÓK 22.05.11
  10. SLEDNECKS 14 - TRAILER

Síða 72 af 78

  • Byrjun
  • Fyrri
  • 67
  • 68
  • 69
  • 70
  • 71
  • 72
  • 73
  • 74
  • 75
  • 76
  • Næsta
  • Endir

Jónas Stefánsson | info@jonni.is | © Allt efni nema annað sé tekið fram

 

Facebook      Twitter      Instagram      Vimeo