• BLOGGIÐ
  • JONNI
    • MYNDIR
    • MYNDBÖND
  • JONNI PRODUCTIONS
    • GRAFÍK
    • AUGLÝSINGAR
    • VEFSÍÐUR
    • LJÓSMYNDUN
    • KVIKMYNDUN
  • ENGLISH

KLAUSTRI FRESTAÐ VEGNA ELDGOSSINS !

Mánudagur 23 Maí 2011 17:00 | Prenta | Tölvupóstur | Flettingar: 3382

Tekið af www.mbl.is:

Keppni í þolakstri á vélhjólum sem átti að fara fram á Kirkjubæjarklaustri nk. laugardag hefur verið frestað um ótilgreindan tíma vegna öskufalls frá eldgosinu í Grímsvötnum.

Karl Gunnarsson, formaður mótorhjóla- og snjósleðaíþróttasambands Íslands, segir í samtali við mbl.is að keppnisstjórn Vélhjólaíþróttaklúbbsins, sem stendur fyrir keppninni, hafi tekið þessa ákvörðun í morgun.

„Það er ekki forsvaranlegt að fara inn á þetta svæði. Menn eru að hjóla í sex tíma í öskuryki. Svo er sveitin varla tilbúin að taka við okkur,“ segir Karl. Menn vonist til þess að hægt verði að halda keppnina í september.

Um 430 keppendur voru skráðir til leiks, þar af 12 erlendir keppendur frá Svíþjóð og Kanada. „Okkur reiknaðist til að þetta gæti verið á bilinu 1.500 til 2.000 manns sem fylgja mótinu,“ segir Karl og bætir við að erlendir blaðamenn hafi verið búnir að boða komu sína hingað til lands.

Karl segir að gosið í Eyjafjallajökli í fyrra hafi ekki haft þessar afleiðingar og keppnin hafi því verið haldin án vandræða. „En eins og staðan er núna þá er þetta náttúrulega bara „disaster“.“

Keppnin kallast á ensku Trans Atlantic Off-Road Challenge, en er kölluð Klausturskeppnin. Hún byrjar ávallt klukkan 12 á hádegi og lýkur kl. 18. Hjá flestum er keppnisfyrirkomulagið þannig að tveir eru saman í liði og skiptast þeir á að hjóla.

Nánar / Tjá skoðun

Tweet Comments
Flokkur: Mótorhjól / Enduro

GOPRO SUPERCROSS 2011 HIGHLIGHTS

Fimmtudagur 19 Maí 2011 00:07 | Prenta | Tölvupóstur | Flettingar: 3552

Hrikalega töff klippa frá GoPro þar sem brunað er yfir AMA/FIM Supercross tímabilið 2011 ! Flottar klippur og allt tekið upp með GoPro vélum ! Þetta tímabil situr ennþá í manni... Það yrði nú svakalegt ef AMA/FIM Motocross tímabilið í sumar yrði eitthvað svipað !

Nánar / Tjá skoðun

Tweet Comments
Flokkur: Mótorhjól / Supercross

GUERLAIN CHICHERIT TEARS APART TIGNES

Miðvikudagur 27 Apríl 2011 22:22 | Prenta | Tölvupóstur | Flettingar: 5330

Atvinnu freeskíðarinn og Dakar rallýkappinn Guerlain Chicherit var að senda frá sér alveg geðveikt video þar sem hann stælar svona hálfpartinn Gymkhana video-in hans Ken Block nema hann tekur á því í Dakar rallýjeppanum í snjó í Tignes, Frakklandi ! Þetta video er alveg geðveikt, en hann tekur alveg sver stökk og tekur meira að segja rail á bílnum ! Gaman að segja frá því að Xavier Bertoni einn besti vinur Guerlain og annar Freeski atvinnumaður var í farþegasætinu !

Nánar / Tjá skoðun

Tweet Comments
Flokkur: Fréttir / Bílar

ÍSLENSKA SLEÐAÚTRÁSIN Í SVÍÞJÓÐ

Miðvikudagur 27 Apríl 2011 14:15 | Prenta | Tölvupóstur | Flettingar: 4986

Akureyringarnir Bjarki Sig og Baldvin eru búnir að vera úti í Svíþjóð núna í nokkrar vikur að sleðast með ýmsum flottum gaurum og þar á meðal Ruff Riders krúinu ! Gummi Skúla og Danni eru líka búnir að vera úti og það hefur ekki beint verið leiðinlegt hjá þeim ! Ég heyrði í þeim fyrir stuttu og þá voru þeir á leiðinni upp til Riksgransen að sleðast með Daniel Bodin, Jimmy Blaze, Kourtney Hungerford o.fl. legendum !

Hér eru tvö video sem Bjarki var að smella inn á YouTube úr hjálmkamerunni sinni frá geggjaðri trjávitleysusleðun ! Ekki beint leiðinlegt ! Vona að við fáum fleiri myndir og video frá þeim sem fyrst !

Nánar / Tjá skoðun

Tweet Comments
Flokkur: Snjósleðar / Freeride

HYBRID COLOR FILMS - WINTER PROJECT

Miðvikudagur 27 Apríl 2011 12:21 | Prenta | Tölvupóstur | Flettingar: 3669

Þessi trailer er nýlega sloppinn á netið en þetta er nýtt "crew" frá Alaska sem eru að vinna að nýrri sleðamynd sem ég er reyndar ekki búinn að finna dagsetningu á en miðað við þennan trailer get ég ekki beðið því þetta er gott stöff ! Þessir gæjar eru með gott auga og þarna eru líka flottir keyrarar ! Ef Slednecks gengið uppar sinn leik ekki vel fyrir næstu mynd á þessi eftir að gefa þeim spark í rassinn !

Nánar / Tjá skoðun

Tweet Comments
Flokkur: Snjósleðar / Freeride

Fleiri greinar...

  1. AK-X 2011 - VIDEO...
  2. USA SKÍÐA OG X-GAMES FERÐ 20-31.01.11
  3. TORSTEIN HORGMO AT NORTHSTAR
  4. ANDREAS HATVEIT - THE GOOD LIFE
  5. NAPOLEON Á LEIÐ Í NÝJAR HENDUR ?
  6. AK EXTREME 2011
  7. SAAS-FEE GLACIER DOWNHILL 2011
  8. ALEXANDER NORDGAARD IN SLOMO
  9. WORLD RECORD BACKFLIP & FREESTYLE
  10. NATE TYLER - INNERSECTION

Síða 75 af 78

  • Byrjun
  • Fyrri
  • 69
  • 70
  • 71
  • 72
  • 73
  • 74
  • 75
  • 76
  • 77
  • 78
  • Næsta
  • Endir

Jónas Stefánsson | info@jonni.is | © Allt efni nema annað sé tekið fram

 

Facebook      Twitter      Instagram      Vimeo