Jonni

USA SKÍÐA OG X-GAMES FERÐ 20-31.01.11

Þá er það loksins komið í loftið, hið hrikalega video frá ferðalagi okkar Örnu Bennýjar til Bandaríkjanna í janúar að renna okkur í hvítagullinu og fylgjast svo með Winter X games í Aspen ! Þetta var náttúrulega alveg geggjuð ferð og til svo alltof mikið af skemmtilegu efni, en ég reyndi að stytta þetta niður eins og ég gat svo þetta myndi ekki stela of miklum tíma af ykkur ! Vona að þið njótið !

Nánar / Tjá skoðun

NAPOLEON Á LEIÐ Í NÝJAR HENDUR ?

Þá er komið að því að athuga hvort Napoleon geti komist í hendur nýs eiganda sem getur haldið áfram að elta ævintýri á honum. Napoleon er háþekju VW Transporter 2000 árgerð, framdrifinn og beinskiptur með 2 lítra bensínvél. Hann er keyrður rétt yfir 200 þús og fengið reglulegt og gott viðhald. Þessi bíll er alger fjölnota bíll en ég hef notað hann sem sleðabíl, mótorhjólabíl, surfbíl, fjallahjólabíl og svo auðvitað húsbíl.

Bílinn keypti ég haustið 2007 til að nota sem sleðabíl þegar ég fór að æfa Snocross í Svíþjóð veturinn 2008. Sumarið 2008 breytti ég honum sjálfur í húsbíl og um haustið fórum ég og kærasta mín í þriggja mánaða Evrópureisu á bílnum og bjuggum þá í bílnum. Um veturinn var bíllinn svo aftur notaður fyrir sleðann hér heima meðan Snocross tímabilinu stóð og svo um sumarið nýttum við hann sem húsbíl. Í fyrra notaði ég hann sem sleðabíl um veturinn og ýmist hjólabíl eða húsbíl um sumarið.

En að útbúnaðnum í bílnum sjálfum. Bæði framsætin eru á snúningsplatta og það eru mjög fínar Kenwood græjur í bílnum með 6 hátölurum bæði að framan og afturí. Bíllinn er allur teppalagður að innan og flott LED lýsing í loftinu og það er líka topplúga í þakinu. Á gólfinu er flottur gólfdúkur og vel gengið frá öllu. Þegar húsbílainnréttingin er í bílnum er semsagt sérsmíðuð innrétting með skápum og eldunaraðstöðu, fellanlegt borð, mjög þæginlegur og góður svefnsófi fyrir tvo er afturí og fyrir aftan hann er þil sem skilur að smá skott þar sem hægt er að geyma ógrynni af dóti og þar eru líka festingar fyrir tvö fjallahjól. Undir sófanum er líka gott geymsluhólf. Svo er lítið mál að kippa sófanum og þilinu úr og þá hefur maður pláss í bílnum fyrir hvað sem er, ég læt fylgja með plastrenninga, gúmmímottur og sliskju sem er hægt að nota fyrir sleða eða hjól. Utaná bílnum eru svo festingar á annarri hliðinni fyrir surfbretti og hinum megin er mjög góð markísa. Á toppnum er svo sólarrafhlaða sem hleður bæði aukageyminn og svo aðalgeyminn ef hinn er fullur. Eina sem ég vill ekki láta með í kaupunum er Truma gasmiðstöðin, nema að það sé sérstaklega samið um það. Það er prófílbeisli aftanábílnum og kerrutengill.  Merkingarnar sem eru núna á bílnum eru bara límmiðar sem er lítið mál að fjarlægja.

Þetta er semsagt bíll sem getur allt og gott betur.

Verðhugmynd fyrir bílinn er: 1.100.000 kr. en ég er til í að skoða öll tilboð !

Áhugasamir hafið samband við mig í síma: 771-8024 eða e-mail: Þetta netfang er varið gegn ruslpósts þjörkum. Þú verður að hafa JavaScript virkt til að skoða það.

Nánar / Tjá skoðun

SLEÐAFLEYTING LUNGA 2010

Enn meira af gömlum góðum klippum sem flæða úr smiðjunni ! Ég henti þessu saman í dag frá "stunt-inu" hans Gumma Skúla á Lunga síðasta sumar þegar hann tók gamla Switchback-inn hans Einars Roth og sýndi honum hvernig ætti að sigla ! Byrjaði vel allavega...! Alltof góður tími þarna síðast, verður sko ekki síðra í sumar !!!

Nánar / Tjá skoðun

JEPPATÚR Í ÞÓRSMÖRK 03-05.07.09

Þau streyma svoleiðis myndböndin úr smiðju Jonni Productions þessa dagana, en í gær þegar ég var að ferðast um flakkarann rakst ég á alveg haug af gömlum klippum frá jeppatúr sem við Arna Benný, Hjalti og Gígja fórum í sumarið 2009 yfir Sprengisand og inn í Þórsmörk ! Þetta var svo mikið af gullnum mómentum að ég hringdi um leið í Hjalta og við settumst saman í hláturskasti og klipptum saman myndband frá ferðinni ! Þetta myndband er stútfullt af vitleysu og einkahúmor frá frábærri ferð sem við áttum !

Nánar / Tjá skoðun

SLEÐADAGUR Á AKUREYRI 12.03.11

Ég tók mig til í dag og skellti saman klippunum frá alltof góða sleðadeginum okkar fyrir tveim vikum á Akureyri ! Þessi dagur var náttúrulega alveg geðveikur og maður var gjörsamlega með strengi í kjálkunum af að brosa út fyrir eyru í öllu púðrinu ! Vona að ykkur líki...

Nánar / Tjá skoðun