Mótorhjól

TRIAL MADNESS GREECE - DAÐI SKAÐI

Skaðinn sjálfur Daði Erlingsson sendi mér link á þetta myndband þar sem þeir félagarnir eru allskyns trial vitleysu í Grikklandi, það er greinilega ekki leiðinlegt hjá þeim í sólinni þarna úti !

FINNI + MÓTORHJÓL + FALLHLÍF = VITLEYSA

Þetta video er bara aðeins of mikil snilld, þarna er mættur einhver snillingur frá Finnlandi sem sýnir okkur hvernig hann fær hjartað til að pumpa á venjulegum sunnudegi í skóginum hjá sér...Crazy Finnish Guy Jump

MOTO 5 THE MOVIE - TRAILER

Stundin sem allir hafa beðið eftir ! Trailer-inn fyrir Moto 5 The Movie var að detta á netið og það er eins og við öll vissum, hún virðist ekki ætla að gefa fyrri myndunum neitt eftir ! Þarna fáum við að sjá þá Ryan Villopoto, Adam Cianciarulo, Josh Cachia, Ronnie Renner, Cooper Webb, Justin Hill, Zach Osborne, Russell Bobbitt, Taylor Robert, Tyler Bereman, Kailub Russell, Jimmy Decotis, Tom Parsons, Kyle Redmond, Cody Webb og marga fleiri ! Myndin verður gefin út þann 19. nóvember en þangað til þá getið þið horft á sýnishorn af veislunni hér...Moto 5 The Movie

 

ISDE 2013 - DAGUR 6

Sjötti og síðasti dagurinn á ISDE 2013 eða Six Days fór fram á Ítölsku eyjunni Sardiníu í dag. Hér fer ég yfir stöðuna svo gallharðir enduro ökumenn landsins geti fengið helstu upplýsingarnar beint í æð !

ISDE 2013 - Dagur 6 - Samantekt:

ISDE 2013 - Day 6

Lokadagurinn var gríðarlega spennandi en þar komu Bandríkjamenn gríðarlega sterkir inn í motocross sérleið dagsins en það var samt ekki nóg til að vinna upp forystu Frakkanna sem hafa verið gríðarlega sterkir frá upphafi og því ljóst að sigur þeirra væri í höfn enda þrír af frönsku ökumönnunum í topp fjórum í heildina og Antoine Meo þar í fararbroddi. En Bandaríkjamenn enduðu í öðru sæti og þar var það Taylor Robert í fararbroddi í 6. sæti í heildarkeppni ökumanna. Í þriðja sæti voru það svo Ítalir og þeirra maður Alex Salvini endaði í 12. sæti í heildarkeppni ökumanna.

Staðan í heildarkeppni milli landa endaði því svona: Frakkar 21h56'32'', Bandaríkjamenn +00h03'51'' og Ítalir +00h13'33''.

Alveg virkilega spennandi keppni sem boðið var uppá í ár og þrátt fyrir að Frakkar hafi sannað sig aftur þá var gaman sjá t.d. hve vel Bandaríkjamönnum gekk en þeir hafa ekki náð betri árangri frá því 1982, einnig gríðarlega gott gengi hjá Áströlum og þá sérstaklega Daniel Milner sem endaði annar í heildarkeppni ökumanna !

Ég vona að þið hafið haft gaman af þessum fréttaflutningi mínum af keppninni og þakka ykkur fyrir heimsóknirnar ;) !

ISDE 2013 - Dagur 6 - Myndband (Digital Offroad):

ISDE 2013 - Dagur 6 - Myndband (FIM):

ISDE 2013 - DAGUR 5

Fimmti dagurinn á ISDE 2013 eða Six Days fór fram á Ítölsku eyjunni Sardiníu í dag. Hér fer ég aðeins yfir stöðuna eftir daginn svo gallharðir enduro ökumenn landsins geti fengið helstu upplýsingarnar beint í æð !

ISDE 2013 - Dagur 5 - Samantekt:

ISDE 2013 - Day 5

Þá er lokahnykkurinn bara eftir þar sem fimmti dagurinn kláraðist í dag og því allir löngu endur dagarnir búnir og aðeins ein motocross sérleið eftir á morgun. Það er greinilegt að Frakkarnir mættu til leiks með öll sín tromp og hafa frá degi eitt verið í gríðarlega góðri stöðu. Antoine Meo leiðir ennþá heildarkeppni ökumanna en næstur eftir honum er ennþá Ítalinn Alex Salvini sem er búinn að koma gríðarlega sterkur til baka í dag og gær eftir slaka byrjun þriðji er svo eins og í gær Frakkinn Pierre Alexandre Renet.

Í heildarkeppninni milli landa eru Frakkar því ennþá í virkilega góðri stöðu og hafa jafnt og þétt aukið forystu sína yfir keppnina en næstir á eftir þeim eru enn Bandaríkjamenn +00h14'19" á eftir en svo eru það Ítalar sem hafa keyrt sig upp í þriðja sætið og eru aðeins +00h04'22" á eftir Bandaríkjamönnum.

Þrátt fyrir góða forystu Frakkanna verður gríðarlega spennandi að sjá hvernig fer í motocross sérleiðinni á morgun en það getur
jú eins og alltaf, allt skeð !

ISDE 2013 - Dagur 5 - Myndband (Digital Offroad):

ISDE 2013 - Dagur 5 - Myndband (FIM):