Mótorhjól

AMA SX 2012 - ROUND 8 - ATLANTA

Núna um helgina fór fram áttunda umferðin í AMA Supercross-inu 2012 og nú var keppt í Atlanta. Brautin um helgina var alveg hrikalega teknísk og flott, mikið af krefjandi "rythma" köflum og svakalegur sandkafli ! Eins og alltaf eru úrslitin falin fyrir þá sem eiga eftir að horfa á keppnina en fyrir hina þá er þetta allt handan við hornið...

AMA Supercross 2012 - Round 8 - AtlantaAMA Supercross 2012 - Round 8 - AtlantaAMA Supercross 2012 - Round 8 - Atlanta

Myndir frá TWMX

Smellið á "Lesa meira..." til að sjá úrslitin frá Atlanta !

Lesa meira...

AMA SX 2012 - ROUND 8 - ATLANTA - TORRENT

Áttunda umferðin af supercrossinu 2012 er komin inn á netið, "slicknick" alltaf klár í að plögga þetta fyrir okkur sem höfum ekki aðgang að Speed TV ! Þessa helgina var keppt í Atlanta, "Live" útsending af öllu fjörinu og því allt í einum pakka !

AMA Supercross 2012 - Round 8 - Atlanta - Torrent

AMA SX 2012 - ROUND 8 - ATLANTA - TRACK

Sýnishorn af brautinni sem verður í 8. umferðinni í Supercrossinu í Atlanta um helgina í USA ! Brautin er með svakalega langann startkafla og krefjandi "rythma" kafla, svo verður spennandi að sjá hvernig ökumenn tækla sandkaflann í miðri brautinni !

MSÍ ÍX 2012 - 2. OG 3. UMFERÐ

Ískross 2012Eins og menn vita fór fyrsta umferðin í Íslandsmótinu í Ískrossi fram á Leirutjörn við Akureyri um þarsíðustu helgi, en það hefur ekki gengið þrautalaust að ná keppni á suð-vesturhornið vegna veðurs og aðstæðna. MSÍ leggur mikla áherslu á að Íslandsmótið verði klárað, en til þess þarf að keyra a.m.k. þrjár umferðir. Í ljósi þess mikla ferðakostnaðar sem við búum við í dag, þá hafa MSÍ og Akstursíþróttafélag Mývatnssveitar komist að samkomulagi um að 2. og 3. umferð Íslandsmótsins í Ískrossi fari fram á Mývatni helgina 17-18 mars n.k.

2. umferðin verður keyrð laugardaginn 17. mars á Stakhólstjörn og 3. umferðin verður svo keyrð sunnudaginn 18. mars, líklega í Álftabáruvogi. Þessa helgi fer fram hið margumtalaða Mývatnssmót, sem er ein allsherjar vetraríþróttaveisla. Dagskráin verður á þessa leið:

Föstudagurinn 16.03.12
14:00     Samhliðabrautakeppni á vélsleðum við Kröflu
16:00     Fjallaklifur (Hillcross) á vélsleðum við Kröflu
20:00     Snjóspyrna á vélsleðum við Skútustaði

Laugardagurinn 17.03.12
09:00     Ískross á vélhjólum við Skútustaði (2. umf. Íslandsmótsins)
14:00     Sno-Crosscountry á vélsleðum (2. umf. Íslandsmótsins)

Sunnudagurinn 18.03.12
10:00     Ískross á vélhjólum við Skútustaði (3. umf. Íslandsmótsins)

Verið velkomin í Mývatnssveitina.

F.h. stjórnar MSÍ og AM
Stefán Gunnarsson

AMA SX 2012 - ROUND 7 - DALLAS - TORRENT

Sjöunda umferðin af supercrossinu 2012 er komin inn á netið, "slicknick" alltaf klár í að plögga þetta fyrir okkur sem höfum ekki aðgang að Speed TV ! Þessa helgina var keppt í Dallas, "Live" útsending af öllu fjörinu og því allt í einum pakka !

AMA Supercross 2012 - Round 7 - Dallas - Torrent