FREESKI SESSION 07.01.12
Við Steingrímur kíktum aðeins út með skíðin heima í Mývatnssveitinni um helgina og ætluðum í eitthvað jibb mission en fundum ekkert nógu gott svo það endaði með því að Andri mætti með fjórhjólið, gerðum pall og svo var tekið á því haha ;) ! Þetta var útkoman...
SLEÐASKÓLI LEXA 14. JANÚAR Í BLÁFJÖLLUM
Frá Lexa:
Sleðaskólinn verður með námskeið í Bláfjöllum Laugardaginn 14 Janúar.
Þeir sem hafa áhuga að að mæta eða vilja vita meira Þetta netfang er varið gegn ruslpósts þjörkum. Þú verður að hafa JavaScript virkt til að skoða það..
Allar helstu uppl um sleðaskólann er að finna hér.
Kv. LEXI
KALLE JOHANSSON Í PÚÐUR GEÐVEIKI
Það er greinilegt að Kalle "KJ" Johansson er aðeins búinn að uppfæra sleðaflotann frá hræinu sem við sáum hann á í síðustu Slednecks mynd ! Hérna er hann kominn á nýjann Arctic Cat 1100 með túrbínu og öllum pakkanum og er að taka á því í hrikalegu púðri !
SLEÐUN ÓLAFSFIRÐI 28.12.11
Á milli jóla og nýárs skelltum við okkur nokkur vel valin út í Ólafsfjörð á sleða, bretti og í almennann fíflaskap ! Fengum alveg snilldar veður og mjög fínt færi. Þrátt fyrir að tveir sleðar hafi komið niðrá Kleifar aftur í spotta var þetta alveg snilldar dagur ! Arna og ég tókum slatta af myndum og ég smellti þeim í myndaalbúm á myndasíðunni, fullt af flottum myndum frá frábærum degi með frábæru fólki !
Við fundum þennan flotta náttúrulega pall og Arna Benný náði nokkrum klippum af mér og Bjarka í ham ! Ég smellti sitthvorri klippunni af okkur á Vimeo síðuna mína, smá "air-time" á strákunum ;) !
JÓLA SLEÐATÚR Í HEILAGSDAL 25-26.12.11
Á jóladag skelltum við fjölskyldan okkur í sleðatúr uppí Heilagsdal og áttum saman alveg snilldar kvöld í skálanum þar. Veislumatur, hangikjöt og allt þar með, spilað fram á nótt og kúrt ofan í svefnpoka ! Hefði ekki getað verið betra ! Myndavélin var að sjálfsögðu með og ég skellti myndaalbúmi frá túrnum á myndasíðuna.
Fleiri greinar...
- ISOC SNOX 2012 - ROUND 5/6 - CANTERBURY
- AMA SX 2012 - ROUND 1 - ANAHEIM
- AMA SX 2012 - ROUND 1 - ANAHEIM - TORRENT
- SX 2012 UPPHITUN !
- ISOC SNOX 2012 - ROUND 5/6 - CANTERBURY - LIVE
- POWSURFING - NÝTT ÆÐI EÐA FLOPP ?
- NEW YEARS WEEKEND MX CALIFORNIA
- AMA SX 2012 - ROUND 1 - ANAHEIM - TRACK
- ÍSKROSS BIKARMÓT Á HAFRAVATNI 7. JAN
- KXF250 OG KX125 - NÝÁRSTILBOÐ