MSÍ ÍX 2012 - 2. OG 3. UMFERÐ
Eins og menn vita fór fyrsta umferðin í Íslandsmótinu í Ískrossi fram á Leirutjörn við Akureyri um þarsíðustu helgi, en það hefur ekki gengið þrautalaust að ná keppni á suð-vesturhornið vegna veðurs og aðstæðna. MSÍ leggur mikla áherslu á að Íslandsmótið verði klárað, en til þess þarf að keyra a.m.k. þrjár umferðir. Í ljósi þess mikla ferðakostnaðar sem við búum við í dag, þá hafa MSÍ og Akstursíþróttafélag Mývatnssveitar komist að samkomulagi um að 2. og 3. umferð Íslandsmótsins í Ískrossi fari fram á Mývatni helgina 17-18 mars n.k.
2. umferðin verður keyrð laugardaginn 17. mars á Stakhólstjörn og 3. umferðin verður svo keyrð sunnudaginn 18. mars, líklega í Álftabáruvogi. Þessa helgi fer fram hið margumtalaða Mývatnssmót, sem er ein allsherjar vetraríþróttaveisla. Dagskráin verður á þessa leið:
Föstudagurinn 16.03.12
14:00 Samhliðabrautakeppni á vélsleðum við Kröflu
16:00 Fjallaklifur (Hillcross) á vélsleðum við Kröflu
20:00 Snjóspyrna á vélsleðum við Skútustaði
Laugardagurinn 17.03.12
09:00 Ískross á vélhjólum við Skútustaði (2. umf. Íslandsmótsins)
14:00 Sno-Crosscountry á vélsleðum (2. umf. Íslandsmótsins)
Sunnudagurinn 18.03.12
10:00 Ískross á vélhjólum við Skútustaði (3. umf. Íslandsmótsins)
Verið velkomin í Mývatnssveitina.
F.h. stjórnar MSÍ og AM
Stefán Gunnarsson