
|
05.07.2010 |
| Motocross Ísland 2010 - 2. umferð - Álfsnes |
Á laugardaginn fór fram 1. umferðin í Íslandsmótinu í Motocross og fór keppnin fram í Álfsnesi rétt utan við Reykjavík. Brautin var eins frábær og hún getur orðið og var búið að leggja mikla vinnu í að koma henni í svo gott stand. Ég held að enginn hafi komist upp með að keyra hring án þess að brosa því skemmtunin var í hámarki í góðu veðri í snilldar braut. Í 85cc flokki var það Guðbjartur Magnússon sem hélt uppteknum hætti og sigraði. Í B flokki var mikil spenna og á endanum var það snocross hetjan Ármann Örn Sigursteinsson sem sigraði með flottum akstri en B 40+ flokkinn sigraði Haukur Þorsteinsson eftir harða baráttu. Í MX Unglingaflokki var gríðarleg spenna og margir sem komu til að sigra en það var austanmaðurinn Björgvin Jónsson sem sigraði með hreint frábærum akstri. Í Kvennaflokknum sem var stærsti flokkurinn keyrði Signý systir mjög flott og yfirvegað og sigraði með glæsibrag. Í MX2 voru svo mikil átök en með rakettuna í rassgatinu sigraði Eyþór Reynisson okkur hina með yfirburðum. Í MX Open átti svo enginn roð í Aron Ómarsson sem keyrði hrikalega og sigraði. Ég stal nokkrum myndum frá Sverri af Motosport.is mæli með að þið kíkið á alveg geggjaðar myndir frá honum af keppninni !
Mér gekk bara nokkuð vel í keppninni og var að fíla mig vel í brautinni, enda ekki annað hægt ! Í tímatökunum var ég með 4. tímann í MX2 og 13. í Open. Í fyrra hítinu kom ég 10. út úr startinu og var í 3. í MX2. Össi náði mér svo þegar moto-ið var hálfnað en þá hafði Viktor krassað og ég því enn í þriðja og endaði því 3. í MX2 og 11. í Open. Í seinna hítinu komst ég öruggt í gegnum startið ólíkt mörgum öðrum og var lengi vel að keyra 1. í MX2 en þegar um 4 hringir voru eftir kom Eyþór á endahraða framúr eftir að hann krassaði í startinu og ég reyndi svo hvað ég gat að halda Össa fyrir aftan mig en hann átti meiri hraða en ég þarna og náði mér þegar 2 hringir voru eftir, ég endaði því aftur í 3. í MX2 og 12. í Open. Þannig að ég landaði mínum fyrstu Motocross verðlaunum í 2 ár sem var alveg geggjað. Frábær keppni, frábær dagur !
Topp 3 úrslit úr öllum flokkum:
MX1
1. Aron Ómarsson
2. James Robinson
3. Gylfi Freyr Guðmundsson
MX2
1. Eyþór Reynisson
2. Örn Sævar Hilmarsson
3. Jónas Stefánsson
Kvennaflokkur
1. Signý Stefánsdóttir
2. Karen Arnardóttir
3. Andrea Dögg Kjartansdóttir
MX Unglinga
1. Björgvin Jónsson
2. Kjartan Gunnarsson
3. Guðmundur Kort
B-flokkur 40+
1. Haukur Þorsteinsson
2. Reynir Jónsson
3. Gunnlaugur Rafn Björnsson
B-flokkur
1. Ármann Örn Sigursteinsson
2. Steingrímur Örn Kristjánsson
3. Garðar Atli Jóhannsson
85 flokkur
1. Guðbjartur Magnússon
2. Þorsteinn Helgi Sigurðarson
3. Einar Sigurðsson
Heildarúrslitin má sjá á vef MSÍ - www.msisport.is
|
 |
|
 |
|