
|
20.07.2010 |
| LungA 2010 |
Um helgina skelltum við okkur á LungA á Seyðisfirði og vááá hvað þessi hátíð er alltaf geðveik ! Ég, Arna Benný, Signý, Gígja og Bjarki Sig skelltum okkur öll af stað á Napoleon á föstudeginum eftir að hafa hrúgað öllu dóti og drasli í bílinn og fyllt alla skápa og kælinn af mat ! Við rúlluðum í þvílíkri blíðu austur og vorum komin á Seyðisfjörð rétt fyrir 8. Við hittum Gumma Skúla og vini hans úr Mosó en þeir gistu allir í bryggjuhúsi sem fjölskylda Einars Roth á. Við fengum svo að koma okkur fyrir á flottum grasbletti rétt hjá bryggjuhúsinu og sluppum þarmeð bæði við að borga tjaldstæði og lætin sem fylgja tjaldstæðinu, vorum samt ekki nema í 5 mín göngufjarlægð frá bænum ! Þegar við vorum búin að koma Napo fyrir og tjalda og græja hentum við borgurum á grillið og Konni kærasti Gígju kom í heimsókn og stuttu seinna komu Hilli og Hjalti líka ! Við kíktum svo öll í bryggjuhúsið og þar var næg vitleysa í gangi áður en við héldum í bæinn ! Við kíktum á tjaldstæðið og hittum mann og annan og enduðum svo kvöldið í bullandi dans svitabaði í Herðubreið á trylltu DJ brjálæði ! Geðveikt kvöld !
Á laugardeginum sváfum við bara út og eftir morgunmatinn og gott tjill skelltum við Arna Benný og Signý okkur í göngutúr að skoða allt sem var í gangi í bænum ! Þar voru allskyns snilldar listagjörningar í gangi og við skemmtum okkur konunglega. Við fórum svo og fengum armböndin okkar fyrir tónleikaveislu kvöldsins áður en við héldum út í bíl að fá okkur snarl ! Eftir snarlið var enginn annar en ofurhuginn Guðmundur Skúlason mættur og ætlaði nú að fara og fleyta á vélsleða í kringum hólmann miðbænum á Seyðisfirði. Við skelltum okkur auðvitað með og fylgdumst með. Fyrst gekk vel að fleyta yfir í hólmann en um leið og Gummi reyndi að beygja og fara hringinn komst vatn á reimina og hann sökkti sleðanum. En sem betur fer var hann ekki langt frá bakkanum og við drógum hann leikandi upp eftir að björgunarmennirnir Snævar og Guðni Rúnar höfðu komið bandi í sleðann ! Eftir þetta ævintýri héldum við út í bíl og græjuðum fyrir svaka grillveislu en Kristó, Hilli, Hjalti, Ingþór og Elli mættu allir og Gígja og Konni og Einar Óli líka og það var svaka stuð í Napo og í sérútbúna fortjaldinu á meðan við átum á okkur gat ! Þegar við vorum búin að ganga frá héldum við inn í bæ á útitónleikana sem voru alveg geðveikir, hittum fullt af vinum okkar og dönsuðum tryllt undir tónum Hjaltalín, Retro Stefson og aðallega þá Bloodgroup sem voru vangefin ! Eftir að útitónleikunum lauk héldum við inn í Herðubreið þar sem Hjálmar spiluðu fram á nótt en þá kvíslaðist hópurinn og við Arna Benný, Signý og Bjarki héldum heim um 3 leytið !
Á sunnudeginum þurftum við að vakna á skikkanlegum tíma en Arna Benný og Gígja þurftu að vera komnar á AK á æfingu kl hálf 6 svo við gengum frá öllu og sóttum Gígju heim til Konna og vorum lögð í hann rétt um 1 ! Þegar við komum að Eyvindaránni voru Hilli og Kristó og allir strákarnir stopp þar og þeir tveir stukku af brúnni út í, sé pínu eftir að hafa ekki verið með en eftir að hafa fylgst með því brunuðum við heim í sveit í þvílíka veðurblíðu !
Fáránlega góð helgi með æðislegu fólki á enn einni snilldar LungA hátíð ! Tjékkið á myndaalbúminu frá helginni á myndasíðunni eða með því að smella hér !

|
 |
|
 |
|