Þegar þú sérð surfbretti á bíl í Jackson í Wyoming sem er rúma 1100 km frá næstu strönd myndir þú örugglega halda að einhver væri ruglaður en í rauninni er þar alda sem menn keppast um að surfa á þessum árstíma. Þarna nýta menn sér vatnsflæðið í "Snake River" ánni á þessum árstíma þegar snjórinn úr fjöllunum bráðnar hvað mest og þá draga menn fram surfbrettin sín og surfa eina stærstu flúðina í ánni sem kallast "Lunch Counter Rapids" og geta surfað eins lengi og fæturnir halda þeim á lofti ! Sumir hafa meira að segja náð að surfa ölduna í meira en 20 mínútur áður en þeir gáfust upp og létu sig flakka niður flúðirnar til að komast aftur í land en það er víst meira en að segja það því straumurinn í ánni er gríðarlegur og það getur verið mikil raun að komast í land. Það er nú nokkuð töff að hugsa til þess að þessir gaurar séu að surfa sama vatn og þeir skíðuðu kannski á um veturinn þegar það var í formi snjós í fjöllunum í kring...