9. umferðin af 12 í AMA Motocrossinu í USA fór fram um helgina í Unadilla í New York fylki. Unadilla er yfirleitt þekkt sem mjög erfið braut og ein af þeim sem hefur verið hvað lengst í AMA seríunni. Í brautinni eru ótrúlegar hindranir eins og risastór pallur sem kallsast "skyshot" og svakaleg kvos ef svo mætti kallast sem þeir kalla "gravity cavity" vegna þess hve mikið maður pressast niður í botninum á leiðinni upp aftur ! En þessi keppni var alveg fáránlega spennandi og það bæði hjá 250 flokknum og 450 flokknum. Ef þið hafið einhvern áhuga á motocrossi þá get ég mælt með því að skoða þessa keppni því hún bauð uppá ótrúlegt race ! Næsta keppni fer svo fram í Southwick sem er svakaleg sandbraut þann 28. ágúst ! Eins og venjulega þá eru úrslitin falin fyrir þá sem vilja halda sig frá þeim...
Smellið á "Nánar / Tjá skoðun" fyrir úrslitin frá Unadilla motocrossinu !
Press "Nánar / Tjá skoðun" for the results from Unadilla !
|