
|
24.08.2010 |
| Motocross Ísland 2010 - 5. umferð - Bolaalda |
Um helgina fór fram 5. umferðin í Íslandsmótinu í Motocross og var þetta jafnframt sú síðasta á tímabilinu. Að þessu sinni var keppt í Bolaöldu rétt utan við Reykjavík og voru aðstæður með besta móti. Brautin lúkkaði vel um morguninn en þegar leið á daginn fór hún að líkjast "Bolaöldunni" sem við þekkjum öll með grjótinu sínu og skemmtilegheitum. En hvað um það, flott keppni og flottur endir á sumrinu. Í 85cc flokki kláraði Guðbjartur Magnússon sitt sumar með fullu húsi og því öruggur Íslandsmeistari í 85cc flokki. Í B flokknum var það Michael B David eða Mikki sem eftir langa fjarveru kom og sigraði en Steingrímur Örn Kristjánsson tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn. Í B 40+ var það Ragnar Ingi Stefánsson sem mætti og sigraði daginn en Haukur Þorsteinsson tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn. Í MX Unglingaflokki var svakaleg spenna og mjóu munaði á stigum fyrir síðasta hítið, það var þó Kjartan Gunnarsson sem sigraði og tryggði sér þar með Íslandsmeistaratitilinn. Í Kvennaflokki sigraði Karen Arnardóttir en vélarbilun í hjólinu hjá Signý systur varð til þess að hún gat ekki keyrt fyrra hítið af fullu afli, hún sigraði þó seinna hítið og endaði þriðja og tryggði sér þarmeð Íslandsmeistaratitilinn. í MX2 var Eyþór Reynisson og sigraði flokkinn og tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn. Í MX Open kláraði Aron Ómarsson sitt fullkomna sumar með fullu húsi og því Íslandsmeistaratitillinn öruggur í hans höndum.Ég stal nokkrum myndum hjá Sverri af Motosport.is og ég mæli með að þið kíkið myndirnar frá honum af keppninni !
Þessi keppni var ekki alveg mín megin, ég held að mín fyrri reynsla og hatur á Bolaöldu hafi sett strik í reikninginn. En í æfingum fílaði ég mig ágætlega og skoðaði mikið línur en var svo flaggaður út þegar ég ætlaði að reyna að taka hraðan hring. Ég endaði með 4. tímann í MX2 og 11. í Open. Í fyrra hítinu náði ég svo flottu starti og gekk vel en nokkrar beygjur inn í fyrsta hring rann ég á hliðina og missti alla framúr mér. Ég keyrði eins og ég gat og náði í rassgatið á Össa en ég fann ekki hraðann til að ná honum alveg og endaði því 4. í MX2 og 11. í Open. Í seinna hítinu byrjaði ég svo aftur ágætlega og var framarlega í fyrsta hring en svo gerði ég mistök þegar ég datt í beygju og ekki nóg með það heldur læstist frambremsan hjá mér og ég var heillengi að losa hana, var næstum orðinn hring á eftir. En ég dreif mig af stað og reyndi í æðiskasti að keyra hvað ég gat en hausinn var ekki alveg í fókus og eftir nokkra hringi fór ég aftur á hausinn og þá ákvað ég að segja þetta gott og dólaði með þar til að hítinu lauk. Endaði 5. í MX2 og 12. í Open. Ömurlegur endir á annars frekar góðu sumri, en svona er þetta bara, maður á stundum ekki sína daga...
Topp 3 úrslit úr öllum flokkum:
MX Open
1. Aron Ómarsson
2. Eyþór Reynisson
3. Hjálmar Jónsson
Íslandsmeistari: Aron Ómarsson
MX2
1. Eyþór Reynisson
2. Viktor Guðbergsson
3. Örn Sævar Hilmarsson
Íslandsmeistari: Eyþór Reynisson
MX Unglingaflokkur
1. Kjartan Gunnarsson
2. Guðmundur Kort
3. Ingvi Björn Birgisson
Íslandsmeistari: Kjartan Gunnarsson
Kvennaflokkur
1. Karen Arnardóttir
2. Andrea Kjartansdóttir
3. Signý Stefánsdóttir
Íslandsmeistari: Signý Stefánsdóttir
B flokkur
1. Michael B David
2. Hjörtur Pálmi Jónsson
3. Steingrímur Örn Kristjánsson
Íslandsmeistari: Steingrímur Örn Kristjánsson
B flokkur 40+
1. Ragnar Ingi Stefánsson
2. Haukur Þorsteinsson
3. Hrafnkell Sigtryggsson
Íslandsmeistari: Haukur Þorsteinsson
85cc flokkur
1. Guðbjartur Magnússon
2. Gylfi Þór Héðinsson
3. Einar Sigurðsson
Íslandsmeistari: Guðbjartur Magnússon
Heildarúrslitin má sjá á vef MSÍ - www.msisport.is
|
 |
|
 |
|