Á laugardaginn fór fram 2. umferðin í AMA Endurocrossinu 2010 í USA og var keppt í Oklahoma. Taddy Blazusiak sem vann fyrstu umferðina var mættur gallharður en það voru margir staðráðnir í að sigra þann ósigrandi loks. Það tókst þó ekki um helgina þrátt fyrir að hann hafi lent í ýmsu í Main Event-inu. Mike Brown var á tímabili í forystunni en hann klúðraði sér og Taddy sigraði því sína aðra keppni. Annar varð Geoff Aaron og í þriðja endaði Justin Soule sem er hans besti árangur. Tjékkið endilega á video samantektinni frá keppninni hér að neðan hreint ótrúleg tilþrif, getið spólað á 3.29 til að fara beint í Main Event ! Næsta keppni fer fram 27. ágúst í Indianapolis !