Á föstudaginn fór fram 3. umferðin í AMA Endurocrossinu 2010 í USA og var keppt í Indianapolis. Taddy Balzusiak heldur sínu striki áfram og sigraði um helgina eins og í hinum umferðunum. Ekki nóg með það heldur lenti hans helsti keppinautur Geoff Aaron í vandræðum með hjólið og endaði langsíðastur. Þetta gefur Taddy því ágætis forskot í stigunum núna þegar tímabilið er hálfnað. Það verður þó spennandi að sjá hvernig fer. En í öðru sæti í þessari keppni endaði Kyle Redmond og í þriðja endaði Kevin Rookstool. Næsta keppni fer fram 11. ágúst í Washington !